Velkomin
Velkomin á síðuna.
Þetta er síða um þjónustu og athyglisverða staði á svæðinu frá Jökulsá í vestri að Raufarhöfn í austri. Einnig er ætlunin að flytja fréttir af svæðinu sem viðkemur sveitarfélaginu.
Þeir sem vilja einhverju breyta eða bæta við á síðuna sendi póst hér.
Nýjustu fréttir
-
Sumarvinna í Norðurþingi
mánudagur 3.maí.10 14:30 - Lestrar 1267Sumarið 2010 mun sveitarfélagið Norðurþing standa fyrir sumarvinnu fyrir fólk fætt 1993 og fyrr og hefur lögheimili í sveitarfélaginu Norðurþingi.
Sjá nánar hér -
Fyrirlestur um blöðruhálskirtilsvandamál
fimmtudagur 11.mar.10 13:07 - Lestrar 1178Kvenfélagið Stjarnan stendur fyrir fyrirlestri um blöðruhálskirtilsvandamál í skólahúsinu á Kópaskeri 17. mars, kl. 20°°.
Fyrirlesarar verða Sigurður Halldórsson, læknir og Ólafur G. Skúlason, hjúkrunarfræðingur.
Kynning á starfsemi Krabbameinsfélags Norðausturlands.
Kaffiveitingar og fyrirlestur í boði kvenfélagsins.
Kveðja
Kvenfélagið Stjarnan
-
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla
laugardagur 20.feb.10 13:33 - Lestrar 19407Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíðargildi laga nr. 1/2010 fer fram á skrifstofu norðurþings á Kópaskeri, þriðjudaginn 23.febrúar 2010 frá kl. 10:00 til 12:00.
Sýslumaðurinn á Húsavík, 25. janúar 2010




