Ferðaþjónustan Lundi
5 mínútur frá Ásbyrgi - Lundur Ferðaþjónusta.

Lundur er í Birkiskógi við þjóðbraut. Í næsta nágrenni eru merkir áningastaðir, svo sem Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum (6 km.), Hljóðaklettar, Dettifoss, Rauðinúpur og Hrauhafnartangi.
Í Lundi er boðið upp á gistingu í :
6 glæsilegum herbergjum, með 2 uppábúnum rúmum og 2 herbergium með 3 uppábúnum rúmum. Í sama húsi er sér afbreyingarherbergi.
Allt svefnpokapláss er í skólastofum.
Alls eru 75 gistirými í Lundi, 18 uppábúin og 57 svefnpokapláss.
Fjölskylduvænt tjaldsvæði með mjög góðri leikaðstöðu.
Frábær sundlaug með heitum jarðsjó, ca. 35 gráður, einnig heitur pottur.
Netaðgangur.
Aðstaða fyrir fatlaða.
Við bjóðum upp á fjölbreyttar veitingar alla daga, bæði af matseðli og tilboð dagsins.
Staðurinn er tilvalinn fyrir ættarmót og allskyns stærri samkomur.
Þetta er aðeins brot af því sem er í boði. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 696-3667.
Í Lundi er sími 465-2247.
Opið frá 6. júní - 20. ágúst .



